Jens segir pass
Nú er meira en mánuður frá síðustu færslu. Þá var allt á kafi í snjó í Ósló. Nú ríkir sumarblíða og snjórinn hvarf eins og dögg fyrir sólu um Páskana. Við vorum alla Páskahelgina uppi á Skeiðakambi á skíðum. Jenný er bísnagóð - en Jens nennir ekki að standa á skíðum og vill bara láta draga sig á sleða.
Undanfarin mánuð höfum við unnið að því nokkur að ná passamynd af Jens. Þrír atvinnuljósmyndarar hafa komið að þessu verki ásamt fjórum amatörum og tveimur fílelfdum löggum. Jens hefur verið á móti þessum fyrirætlunum. Hann hefur haft það fyrir reglu síðustu vikur að segja pass við öllum tillögum. Passamyndirnar hafa því einkennst að steyttum hnefum, grettum og þrjóskulegum baksvip. Þó féllst hann loks í gær á að vera vinur ljósmyndakonu á Drammensveginum og lék þar á alls oddi - og fær nú nýjan passa.
